Besta leiðin til að klúðra ekki grilluðum aspas

Næst þegar þú grillar aspas skaltu prófa þetta trix.
Næst þegar þú grillar aspas skaltu prófa þetta trix. mbl.is/Joe Lingeman

Asp­as hef­ur verið að gera sig meira sýni­leg­an í gegn­um árin og er hið mesta lostæti. Hann má mat­reiða á svo marga vegu og bera fram sem meðlæti eða jafn­vel sem létt­an rétt. En við þekkj­um til þess að asp­asinn eigi það til að hlaupa um grill­grind­ina og lenda jafn­vel á milli og þá eru góð ráð dýr.

Til að kom­ast hjá slík­um vand­ræðum er til ein­föld lausn, þar sem þú get­ur grillað 5-6 stykki sam­an á einu bretti. Þú ein­fald­lega dreg­ur fram grillp­inna og þræðir þá í gegn­um asp­asinn sem þú svo pensl­ar með ólífu­olíu og salt­ar og pipr­ar. Munið bara að bleyta grill­spjót­in áður en þið setjið asp­asinn upp á og á grillið.

Við mæl­um með að velja eins þykka aspas­stöngla og mögu­legt er. Þeir eru auðveld­ari að stinga spjót­un­um í gegn­um og það er minni hætta á að þú ofeld­ir þá á grill­inu. Fyr­ir minni gerðina af asp­as er flott að nota ein­hvers kon­ar grill­bakka.

Þegar þú hef­ur grillað all­an þann mat sem á að vera á boðstóln­um er fínt að henda asp­asin­um á grillið und­ir það síðasta. Látið standa á grill­inu í sirka 4 mín­út­ur og snúið þá við, eða þegar grill­för hafa mynd­ast í asp­asin­um og hann orðinn fal­lega grænn að lit. Kryddið meira ef vill og kreistið jafn­vel sítr­ónu yfir.

mbl.is/​Joe Lingem­an
mbl.is/​Joe Lingem­an
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert