Kjúklingasalat með suðrænni sveiflu

mbl.is/Chelseamessyapron.com

Það er an­anasinn sem gef­ur okk­ur suðræna bragðið í þessu kjúk­linga­sal­ati. Hér er not­ast við hrá­efni sem tala svo sann­ar­lega sama tungu­málið því þetta er með því fersk­ara sem sést hef­ur lengi. Það má vel nota ann­ars­kon­ar brauð eða jafn­vel vefju í stað croiss­ants – bara það sem fell­ur að smekk hjá hverj­um og ein­um.

Kjúklingasalat með suðrænni sveiflu

Vista Prenta

Kjúk­linga­sal­at með suðrænni sveiflu

  • 2 boll­ar til­bú­inn kjúk­ling­ur, skor­inn í litla bita
  • ½  bolli hakkaður an­an­as
  • ⅓1/​3 bolli hun­angsristaðar möndl­ur
  • ½ bolli sell­e­rí, skorið í þunn­ar sneiðar
  • 2 msk rauðlauk­ur, smátt skor­inn
  • ¼ bolli maj­ónes
  • 2 msk. sýrður rjómi
  • 1 msk. hun­ang
  • 1 tsk. dijon sinn­ep
  • 1 tsk. nýkreist­ur sítr­ónusafi
  • Salt og pip­ar
  • Croiss­ant eða ann­ars­kon­ar brauð

Aðferð:

  1. Setjið kjúk­ling­inn í stóra skál ásamt an­anasin­um, ristuðu möndl­un­um, sell­e­rí og rauðlauk. Blandið vel sam­an.
  2. Pískið sam­an í litla skál, maj­ónesi, sýrðum rjóma, hun­angi, dijon sinn­epi, sítr­ónusafa, salti og pip­ar. Hellið dress­ing­unni yfir kjúk­linga­sal­atið og blandið sam­an. Smakkið aft­ur til með salti og pip­ar, jafn­vel sítr­ónusafa.
  3. Setjið sal­atið á croiss­ant og bætið jafn­vel við sal­at­blaði – ber­ist fram strax.
Fallegt og bragðgott kjúklingasalat með suðrænni sveiflu.
Fal­legt og bragðgott kjúk­linga­sal­at með suðrænni sveiflu. mbl.is/​Chel­sea­messyapron.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert