Lakkrískóngurinn efnir til samkeppni

Hann er ekki kallaður lakkrískóngur að ástæðulausu.
Hann er ekki kallaður lakkrískóngur að ástæðulausu. mbl.is/Johan Bülow

Það er eng­in skömm að segja frá því að við erum mikl­ir aðdá­end­ur lakk­ríss­ins frá Joh­an Bülow en hann er þekkt­ur fyr­ir að koma með nýj­ar og nýj­ar bragðteg­und­ir við hvert til­efni, stór sem smá sem við ávallt freist­umst til að smakka.

Við rák­umst á það á In­sta­gram-síðu Bülow að hann er að efna til sam­keppni. Það eina sem þú þarft að gera er að ýta á link­inn HÉR og taka þátt. Í verðlaun er hand­smíðað hjól eft­ir snill­ing­ana hjá Vel­or­bis, en hjólið hef­ur hlotið nafnið BERRIES og mun karf­an á fram­hlið hjóls­ins vera fyllt af Berries-lakk­rís frá kóng­in­um sjálf­um. Keppn­in stend­ur yfir til 16. ág­úst svo það er næg­ur tími til stefnu.

Ein af sérsverslunum Johans Bülow í Svíþjóð.
Ein af sér­sversl­un­um Johans Bülow í Svíþjóð. mbl.is/​In­sta­gram_lakrids­bybu­low
mbl.is/​In­sta­gram_lakrids­bybu­low
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert