Nýjar freistingar frá Normann Copenhagen

Splunkuný viskastykki og borðtuskur frá Normann Copenhagen.
Splunkuný viskastykki og borðtuskur frá Normann Copenhagen. mbl.is/Normann Copenhagen

Við get­um ekki setið á okk­ur er nýj­ar freist­ing­ar bjóðast í eld­húsið! Nýja tex­tíl-lína Normann Copen­hagen ein­kenn­ist af nor­ræn­um tex­tíl­hefðum sem bland­ast hér sam­an við tísku­strauma nú­tím­ans hvað lita­val varðar. Ein­kunn­ar­orðið er „CLE­AN“ með áherslu á virkni og mög­leika á að blanda sam­an við aðrar vör­ur.

Við sjá­um þrjár mis­mun­andi týp­ur, þar sem hver og ein sam­an­stend­ur af tveim­ur viska­stykkj­um í dá­semd­ar­lit­um og -munstr­um. Skýja­blár, sand­lit­ur og föl­grænn lit­ur sem þó er aðeins kryddaður með app­el­sínu­gulu. Borðtuska er einnig fá­an­leg í stíl við viska­stykk­in svo eng­inn þarf að hafa áhyggj­ur af skrýtnu kom­bói uppi á borðunum hvað það varðar.

mbl.is/​Normann Copen­hagen
mbl.is/​Normann Copen­hagen
mbl.is/​Normann Copen­hagen
mbl.is/​Normann Copen­hagen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert