Grænmetismeðlætið sem gaman er að grilla

Ef þú hefur ekki smakkað grillað brokkolí þá mælum við …
Ef þú hefur ekki smakkað grillað brokkolí þá mælum við með því strax í dag. mbl.is/Parker Feierbach

Það er fátt betra á grillið en græn­meti. Það þarf alls ekki að vera flókið en oft dug­ar bara að pensla með olíu og salta með góðu salti. Hins veg­ar má líka krydda og mar­in­era eft­ir kúnst­ar­inn­ar regl­um og þetta ein­mitt þannig upp­skrift.

Grænmetismeðlætið sem gaman er að grilla

Vista Prenta

Græn­metið sem vand­lát­ir munu borða

  • 900 g brok­kolí
  • ¼ bolli olífu­olía
  • 2 msk. worcestersósa
  • 1 msk. soja sósa
  • 3 msk. tóm­atsósa
  • 1 msk. hun­ang
  • 3 hvít­lauksrif, mar­in
  • ½ tsk kos­her salt
  • Pip­ar
  • ¼ tsk rauðar pipar­flög­ur
  • ¼ bolli par­mes­an
  • Sítr­óna

Aðferð:

  1. Hitið grillið á meðal hita. Skerið brok­kolíið í litla bita.
  2. Pískið sam­an ólífu­olíu, worcesters­hire, soja sósu, tóm­atsósu, hun­ang og hvít­lauk. Kryddið með salti, pip­ar og rauðum pipar­flög­um. Veltið brok­kolí­inu upp úr og látið standa í 10 mín­út­ur.
  3. Setjið brok­kolíið á grillið og stráið ör­lítið meira af salti yfir. Grillið þar til mjúkt und­ir tönn, og munið að snúa við á 2 mín­útna fresti. Það má pensla yfir með af­gangs sósu í 8-10 mín­út­ur.
  4. Dreifið par­mes­an yfir og berið fram með sítr­ónu­bát­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert