Mexíkó ostafylltir hamborgarar á grillið

mbl.is/

Þessi út­færsla af ham­borg­ur­um eru svo girni­leg­ir að það kem­ur bók­staf­lega vatn í munn­inn og bragðlauk­arn­ir ær­ast. Flókn­ara þarf það nefni­lega ekki að vera. Bara skot­helt meðlæti og borg­ari löðrandi í osti...

Mexíkó ostafylltir hamborgarar á grillið

Vista Prenta

Mexí­kó osta­fyllt­ir ham­borg­ar­ar á grillið

Dug­ar í sex borg­ara

  • 1 kg nauta­hakk
  • 1 egg
  • 1 dl brauðrasp
  • ½ dl rjómi frá Gott í mat­inn
  • 1 Mexí­kóost­ur, rif­inn
  • 1½ tsk. sjáv­ar­salt
  • 1 tsk. nýmalaður pip­ar
  • 6 sneiðar Óðals Chedd­ar

Aðferð:

  1. Hrærið öllu inni­hald­inu í ham­borg­ara sam­an án þess að vinna hakkið of mikið.
  2. Mótið sex ham­borg­ara­buff úr hakk­blönd­unni.
  3. Kryddið ham­borg­ar­ann að utan með salti og pip­ar.
  4. Grillið svo við meðal- til háan hita þar til eldaðir í gegn. Um það bil 10-15 mín­út­ur.
  5. Leggið þá ost­inn yfir, lokið grill­inu í u.þ.b. tvær mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn er al­veg bráðnaður.
  6. Takið af grill­inu og setjið borg­ar­ana sam­an.

Heima­til­bú­in ham­borg­arasósa

  • 1 dós 18% sýrður rjómi frá Gott í mat­inn
  • 4 msk. Grísk jóg­úrt frá Gott í mat­inn
  • 1 tsk. sítr­ónusafi
  • 1 msk. chillimauk (t.d Sam­bal oelek)
  • 1 msk. tóm­atsósa
  • 1 msk. sætt sinn­ep
  • Nokkr­ar súr­ar gúrk­ur, smátt saxaðar
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk
Aðferð:
  1. Hrærið öllu inni­hald­inu sam­an og smakkið til með salti og pip­ar.

Meðlæti

  • Ham­borg­ara­brauð
  • Grænt sal­at
  • Tóm­atasneiðar
  • Rauðlaukssneiðar
Thinkstock
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert