Svona skammtar þú ís og sleppur við uppvask

Skammtið ís í muffinsform og sleppið við óþarfa uppvask.
Skammtið ís í muffinsform og sleppið við óþarfa uppvask. mbl.is/Pinterest

Rétt upp hönd sem eru til í ekk­ert upp­vask. Við kynn­um hér fyr­ir ykk­ur eitt frá­bært ráð ef von er á gest­um og þig lang­ar að bera fram ís.

Dragðu fram muff­ins­form og fylltu þau með ís­kúl­um og settu aft­ur inn í frysti. Þegar gest­irn­ir eru svo farn­ir að góla á eft­ir­rétt dreg­ur þú muff­ins-ís­inn fram úr frysti. Öðru­vísi og skemmti­leg leið á desert og mun alltaf slá í gegn hjá yngri kyn­slóðinni. Þá er upp­lagt að hafa sós­ur eða annað meðlæti með sem hver og einn vel­ur fyr­ir sig.

mbl.is/​Yester­dayontu­es­day.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert