„Þá er enginn heilagur grillmeistari“

Halla María Svansdóttir
Halla María Svansdóttir mbl.is/

Hvað grilla meist­ar­arn­ir? Við feng­um Höllu Maríu Svans­dótt­ur sem á veit­ingastaðina Hjá Höllu í Leifs­stöð og Grinda­vík til að svara nokkr­um grun­vall­ar­spurn­ing­um um lífið og grillið!

Nafn: Halla María Svans­dótt­ir

Staða: Eig­andi veit­ingastaðar­ins Hjá Höllu í Grinda­vík og í Leifs­stöð

Hvernig grill­græja er á heim­il­inu? Við erum með We­ber-grill á heim­il­inu og er það úti allt árið um kring.

Hvaða mat­ur er best­ur á grillið?

Mér finnst allt gott - það er aft­ur á móti mis­jafnt hvað meðlim­ir heim­il­is­ins vilja. Við erum dug­legri að grilla kjöt en fisk, en mér finnst fisk­ur­inn alltaf ótrú­lega góður á grillið og myndi ég velja hann oft­ar ef hann væri aðeins vin­sælli á heim­il­inu.

Grill­ar þú mest yfir sum­ar­tím­ann eða allt árið um kring? Við grill­um meira á sumr­in, sér­stak­lega þessa dag­ana þegar veðrið er svona gott, en við grill­um allt árið. Til að mynda höf­um við grillað síðustu tvenn ára­mót heima hjá okk­ur fyr­ir stór­fjöl­skyld­una þrátt fyr­ir mik­inn kulda.

Ertu týp­an sem „á“ grillið og eng­inn ann­ar kemst ná­lægt? Nei, alls ekki. Við erum dug­leg að fá vina­hóp­inn í mat og þá er eng­inn heil­ag­ur grill­meist­ari, held­ur leggja all­ir sitt af mörk­um og fá að spreyta sig á tein­in­um.

Hvað er ómiss­andi í góðri grill­veislu? Held að maður­inn minn myndi klár­lega segja einn kald­ur á kant­in­um, en það klikk­ar víst seint að hafa gott vín með góðum mat. Ég var mikið fyr­ir að hafa gott sal­at með matn­um og auðvitað sósu, en núna er nýj­asta æðið að vera með góða ólífu­olíu og fersk­an par­mes­an með kjöt­inu, ásamt grilluðu græn­meti – mér finnst það hrika­lega gott og góð til­breyt­ing.

Í raun er ekk­ert eitt sem er ómiss­andi, en ætli ég verði ekki að nefna að ein köld hvít­víns­flaska og góða skapið sé nauðsyn í góðri grill­veislu.

Áttu gott grill­ráð handa okk­ur? Ein­falt er alltaf best svo mér finnst mik­il­vægt að velja gott, hágæða hrá­efni og leyfa því að njóta sín.

Elva Hrund Ágústs­dótt­ir elva@mbl.is

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert