Bananabrauð með trönuberjum, möndlum og kókos

Gargandi gott bananabrauð.
Gargandi gott bananabrauð. mbl.is/Columbus Leth

Inni­halds­lýs­ing­in ein og sér er svo girni­leg að við þurf­um næst­um ekki neitt meira. Þetta safa­ríka brauð er það besta sem þú get­ur boðið upp á í helgar­bröns­in­um. Hér er not­ast við 4 lít­il bök­un­ar­form en ef þú átt ekki slík, þá má vel nota eitt stórt en þá breyt­ist bök­un­ar­tím­inn í 50 mín­út­ur.

Bananabrauð með trönuberjum, möndlum og kókos

Vista Prenta

Ban­ana­brauð með trönu­berj­um, möndl­um og kó­kos

  • 125 g smjör
  • 175 g syk­ur
  • 2 egg
  • 3 þroskaðir ban­an­ar
  • 100 g sólþurrkuð trönu­ber
  • 150 g hveiti
  • 150 g kó­kos­mjöl
  • 2 tsk. kanill
  • 2 tsk. lyfti­duft
  • 100 g möndl­ur
  • Kó­kos­flög­ur til skreyt­ing­ar

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 175°.
  2. Pískið smjör og syk­ur sam­an. Pískið egg­in út í eitt í einu.
  3. Maukið ban­an­ana og blandið þeim út í deigið og bætið trönu­berj­un­um út í.
  4. Blandið hveiti, kó­kos­mjöli, kanil og lyfti­dufti í aðra skál. Hakkið möndl­urn­ar gróf­lega og blandið þeim út í hveiti­blönd­una. Blandið hveiti blönd­unni út í deigið.
  5. Smyrjið 4 lít­il bök­un­ar­form (eða 1 stórt bök­un­ar­form) hellið deig­inu í. Stráið kó­kos­flög­um yfir og bakið í ofni í 25-30 mín­út­ur (bakið í 50 mín­út­ur ef deigið fer í stórt form). Stingið í með prjóni til að at­huga hvort brauðið sé til­búið.
  6. Leyfið aðeins að kólna áður en borið er fram.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert