Skotheld leið til að halda heimilinu hreinu

Ertu dugleg/ur að nýta eyðurnar á milli verkefna á heimilinu?
Ertu dugleg/ur að nýta eyðurnar á milli verkefna á heimilinu? mbl.is/@openforwinter / Twenty20

Það þarf ekki nema ör­fá­ar mín­út­ur til að rétta heim­ilið aft­ur við. Við vilj­um öll leggj­ast niður eft­ir anna­sam­an dag með fæt­ur upp í loft og ekki lyfta fingri, en við kom­umst bara ákveðið langt á því. Hér eru nokk­ur atriði sem má planta á bak við eyrað:

  • Á meðan þú sit­ur yfir litl­um ras­sálf­um í baði eða ert að bíða eft­ir að vatnið fylli karið er upp­lagt að nota tím­ann og renna aðeins yfir vaskinn, taka til í baðher­berg­is­skúff­unni eða skáp­un­um – þurrka af borðplöt­unni eða jafn­vel þrífa kló­settið.
  • Á meðan ofn­inn inn í eld­húsi er að hitna skaltu nýta tím­ann og tæma uppþvotta­vél­ina, moppa yfir gólfið eða henda göml­um mat úr ís­skápn­um.
  • Ef þú býrð í húsi á tveim­ur hæðum skaltu alltaf taka eitt­hvað með þér sem á heima á hæðinni fyr­ir ofan eða neðan – nýta all­ar ferðir.
  • Þurrkaðu af heima hjá þér næst þegar þú end­ar í síma-tjatti við góðan vin. Þú munt þakka sjálf­um þér fyr­ir að hafa notað þenn­an klukku­tíma eða hvað það er í að gera eitt­hvað gagn­legt í leiðinni.
  • Brjóttu sam­an þvott­inn á meðan upp­á­haldsþátt­ur­inn þinn keyr­ir í sjón­varp­inu. Hver seg­ir að við get­um ekki gert tvo hluti í einu?
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert