Grillað grænmeti getur verið hinn fullkomni forréttur, léttur réttur eða sem meðlæti, því það hentar við öll tækifæri. Hér er kúrbítur og aspas sett á grillið og borið fram með ómótstæðulegu myntusalsa sem gefur nýja upplifun fyrir bragðlaukana.
Grillað grænmetismeðlæti með myntusalsa
- 4 kúrbítar
- 2 búnt af grænum aspas
- 2 msk ólífuolía
- Salt og pipar
Myntusalsa:
- Fersk mynta
- Sítróna
- 100 g heslihnetur
- 1 dl ólífuolía
- Salt
Aðferð:
- Rífið ysta lagið á sítrónu með rifjárni.
- Plokkið blöðin af myntustilkunum og setjið í matvinnsluvél ásamt heslihnetum, rifnum sítrónuberki, ólíufolíu og smávegis af salti.
- Blandið vel saman og smakkið til með salti og jafnvel meiri sítrónuberki. Setjið í skál.
- Skolið kúrbítinn og aspasinn í köldu vatni og látið drippa af. Brjótið neðsta partinn af aspasinum og skerið aspasinn og kúrbítinn í grófa bita.
- Veltið öllu grænmetinu upp úr ólífuolíu og steikið á heitu grilli í 2 mínútur á hvorri hlið.
- Takið af grillinu og veltið upp úr ólífuolíu, salti og pipar.
- Berið grænmetið fram með myntusalsa.