IKEA býður upp á heimsendingu úr eldhúsinu

IKEA býður nú upp á heimsendingarþjónustu á mat.
IKEA býður nú upp á heimsendingarþjónustu á mat. mbl.is/Ikea

IKEA er sjötta stærsta mat­væla­keðja heims – að minnsta kosti sam­kvæmt spænska viðskipta­tíma­rit­inu El Con­fi­dencial. Það nýj­asta er að sænski hús­gagnaris­inn hef­ur hafið heimsend­ing­arþjón­ustu á mat og það í heims­borg­inni Par­ís.

Kjöt­boll­ur, kanil­snúðar, pyls­ur og lax eru á boðstóln­um og er sent frá aðal­versl­un­inni sem staðsett er í miðborg Par­ís­ar. Ef viðtök­urn­ar verða góðar mun fyr­ir­tækið sjá fyr­ir sér að auka þessa þjón­ustu og þá jafn­vel færa sig yfir til Spán­ar og Evr­ópu.

Þetta er allt á reynslu­stigi, en það lít­ur út fyr­ir að IKEA sé að stefna á að verða stærsti skyndi­bitastaður í heimi og áður en við vit­um af verðum við far­in að panta einn skammt af kjöt­boll­um ásamt nýj­um sófa á net­inu. 

Maturinn hjá IKEA þykir vera með þeim betri hvað skyndibita …
Mat­ur­inn hjá IKEA þykir vera með þeim betri hvað skyndi­bita varðar. mbl.is/​Ikea
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert