Langbesta ostakakan með Daim

Ostakaka með Daim sem þú getur ekki látið framhjá þér …
Ostakaka með Daim sem þú getur ekki látið framhjá þér fara. mbl.is/Frederikkewærens.dk

Þessi kaka er hreint út sagt ómiss­andi og al­gjör óþarfi að eyða of mörg­um orðum í það. Hér er upp­skrift að osta­köku með kex­botni, kara­mellusósu og Daim – verði ykk­ur að góðu!

Langbesta ostakakan með Daim

Vista Prenta

Lang­besta ostakak­an með Daim

Kex­botn:

  • 250 g Digesti­ve kex
  • 120 g smjör, bráðið

Rjóma­ostakrem:

  • 400 g Phila­delp­hia eða ann­ar hreinn rjóma­ost­ur
  • 120 g flór­skyk­ur
  • Korn­in úr 2 vanillu­stöng­um eða 1 msk vanillu­syk­ur
  • ½ l rjómi
  • 1 msk. sítr­ónusafi
  • 2 pakk­ar Daim, saxað

Kara­mellusósa:

  • 2 pok­ar Whert­ers Orig­inal kara­mell­ur
  • 1 dl rjómi
  • Salt á hnífsoddi

Skraut:

  • Daim, gróf­lega saxað

Aðferð:

Kex­botn:

  1. Hakkið kexið í mat­vinnslu­vél, þannig að það verði al­veg fínt. Bræðið smjörið og blandið því vel sam­an við kexið. Hellið mass­an­um í smellu­form klætt bök­un­ar­papp­ír í botn­inn (23 cm). Pressið mass­an­um vel niður og setjið í ís­skáp á meðan þú út­býrð ostakremið.

Rjóma­ostakrem:

  1. Þeytið rjóma­ost­inn, vanill­una, flór­syk­ur­inn og sítr­ónusaf­ann sam­an í skál. Þeytið rjómann í ann­ari skál. Veltið rjóm­an­um í ostakremið og bætið gróf­hökkuðu Daim út í. Setjið bök­un­ar­plast í smellu­formið og dreifið rjóma­ostakrem­inu á kex­botn­inn og setjið í kæli í nokkra tíma – gjarn­an yfir nótt.

Kara­mellusósa:

  1. Útbúið sós­una rétt áður en bera á kök­una fram. Bræðið kara­mell­urn­ar í potti og hrærið rjóm­an­um út í ásamt salti. Þegar kara­mell­an og rjóm­inn hafa bland­ast vel sam­an, hellið þá í glas eða könnu svo ein­fald­ara verði að hella kara­mell­unni yfir kök­una.
  2. Losið kök­una úr form­inu og skreytið með gróf­söxuðu Daim og kara­mellusósu.
mbl.is/​Frederikk­ewær­ens.dk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert