Stórkotstleg heimagerð rif og hrásalat

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Rif eru dá­sam­leg­ur mat­ur og ekki svo flók­in að elda - ef maður kann réttu hand­tök­in. Hér erum við með upp­skrift sem er eins heima­gerð og þær ger­ast - og svo ljúf­fengi að það er sleg­ist um af­gang­ana.

Það er Berg­lind Hreiðars­dótt­ir á Gotteri.is sem á heiður­inn að henni og eins og venju­lega þá klikk­ar Berg­lind ekki.

Stórkotstleg heimagerð rif og hrásalat

Vista Prenta

Heima­gerð rif og hrásal­at

Fyr­ir 4-6 manns

Rif

  • 4 x heil óelduð svínarif
  • Góð krydd­blanda
  • 2 x steikar­poki

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn 150°C.
  2. Kryddið rif­in vel beggja meg­in (ég notaði salt, pip­ar, papriku og Bezt á allt krydd í bland).
  3. Komið þeim fyr­ir í steikar­poka, 2 rif í hvorn poka.
  4. Hæg­eldið rif­in í pok­un­um í 1,5 klst, takið þau þá út, opnið pok­ann og leyfið hit­an­um aðeins að rjúka úr.
  5. Penslið örþunnu lagi af sósu (upp­skrift hér að neðan) á rif­in beggja meg­in og grillið á vel heitu grilli skamma stund (þetta gert til þess að fá stökka húð á kjötið).
  6. Takið af grill­inu og penslið 1-2 x sósu á báðar hliðar að nýju, skerið niður, stráið smá ses­am­fræj­um yfir til skrauts og berið fram.

Sósa

  • ½ flaska sæt bbq sósa
  • 2 msk. púður­syk­ur
  • 2 msk. tóm­atsósa

Blandið öllu sam­an í skál og leyfið sykr­in­um að leys­ast upp. Gott að út­búa sós­una þegar rif­in fara í ofn­inn og hræra reglu­lega í henni á meðan þau eld­ast, þá er hún klár til notk­un­ar þegar þau eru til­bú­in.

Hrásal­at með sum­ar­legu ívafi

  • ½ kína­káls­haus
  • 2 meðal­stór­ar gul­ræt­ur
  • ½ grænt epli
  • 1 tsk. sítr­ónusafi
  • 1 msk. maj­ónes
  • 1 msk. sýrður rjómi
  • 1 tsk. sætt sinn­ep
  • 1 msk. aga­ve sýróp
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Saxið kína­kál smátt niður og rífið gul­ræt­ur og epli með rif­járni.
  2. Kreistið sítr­ónusaf­ann yfir og blandið sam­an við græn­metið.
  3. Hrærið maj­ónes, sýrðan rjóma, sinn­ep og sýróp sam­an og kryddið til með salti og pip­ar.
  4. Blandið sam­an við græn­metið og hrærið vel.
  5. Annað meðlæti sem hent­ar vel með þess­ari máltíð er til dæm­is fransk­ar kart­öfl­ur og maís­stöngl­ar.
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert