Ekki drekka vatn eftir að hafa borðað chili

Hefurðu bitið í chili og munnurinn hefur logað á eftir?
Hefurðu bitið í chili og munnurinn hefur logað á eftir? mbl.is/iStockphoto

Það er ekki auðvelt að vita hvernig maður eigi að bregðast við eft­ir að hafa borðað eitt­hvað rosa­lega sterkt og munn­ur­inn stend­ur í ljós­um log­um. Svit­inn lek­ur niður and­litið og það renn­ur niður úr nef­inu. Þá er freist­andi að grípa í næstu vatns­flösku sem er það versta sem þú get­ur gert í stöðu sem þess­ari.

Það sem ger­ir chili svona sterkt er efnið „cap­saic­in“ sem einnig má finna í jalapenjo. Cap­saic­in er lit­laust og sit­ur í inn­an­verðum ávöxt­in­um. Og þegar efnið kemst í snert­ingu við bragðlauk­ana okk­ar þá brýst fram þessi sterka (brenn­andi) til­finn­ing í munn­in­um.

Um leið og þú bít­ur í eitt­hvað sterkt fara skila­boð út í tauga­kerfið um eitt­hvað óþægi­legt. Það sama ger­ist ef þú bít­ur í eitt­hvað sætt eða súrt. Í þessu ástandi mun lík­am­inn gera allt til að skipta þess­um óþæg­ind­um út og það er þess vegna sem sem við byrj­um að svitna og jafn­vel fella tár. Því meira cap­saic­in sem finnst í matn­um, því sterk­ari verða viðbrögð lík­am­ans.

Cap­saic­in sam­an­stend­ur af ekki-pó­lýsk­um sam­eind­um sem þýðir að það leys­ist bara upp við hjálp frá öðrum ekki-pó­lýsk­um sam­eind­um. Vatn sam­an­stend­ur á pó­lýsk­um sam­eind­um og er þess vegna ekki besti kost­ur­inn. Aft­ur á móti eru mjólk og aðrar mjólk­ur­vör­ur full­komn­ar ef þú færð bruna­til­finn­ingu eft­ir chili­át þar sem þær inni­halda ekki-pó­lýsk­ar sam­eind­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert