Mexíkósk ídýfa sem stelur senunni

Brjálæðislega góð mexíkósk ídýfa.
Brjálæðislega góð mexíkósk ídýfa. mbl.is/Liz Andrew/Erin McDowell

Þessi tryllta ídýfa er eins ekta mexí­kósk og hún get­ur verið. Full­kom­in þegar von er á góðum gest­um, þú sérð um dippið og gest­irn­ir koma með ölið.

Mexíkósk ídýfa sem stelur senunni

Vista Prenta

Mexí­kósk ídýfa sem stel­ur sen­unni (fyr­ir 6)

  • 2 msk. ósaltað smjör
  • 1 hvít­ur lauk­ur, smátt skor­inn
  • 3 hvít­lauksrif, mar­in
  • 3 boll­ar af maís
  • 2 msk. hveiti
  • ½ bolli nýmjólk
  • ¼ bolli rjómi
  • 1,5 boll­ar ost­ur, rif­inn
  • Nachos-flög­ur
  • ½ bolli kórí­and­er, saxað
  • ½ bolli feta­ost­ur
  • ½ bolli sýrður rjómi
  • ½ tsk. cayenne-pip­ar (eða meira eft­ir smekk)
  • 2 lime, skor­in í báta

Aðferð:

  1. Bræðið smjör á meðal­hita í potti. Bætið lauk út í og steikið mjúk­an í 4-5 mín­út­ur. Bætið hvít­lauk sam­an við og steikið áfram í 1 mín­útu.
  2. Setjið maís­baun­irn­ar út í og steikið áfram í 2-3 mín­út­ur. Bætið þá hveit­inu sam­an við og hrærið stans­laust í 1 mín­útu.
  3. Bætið við mjólk og rjóma og hitið að suðu – látið sjóða í 3-4 mín­út­ur. Hrærið þá Montery Jack-ost­in­um sam­an við og látið al­veg bráðna.
  4. Raðið tortilla-flög­un­um á bakka eða stór­an disk og hellið blönd­unni jafnt yfir.
  5. Stráið kórí­and­er og cotija-ost­in­um yfir ídýf­una og „skvettið“ sýrðum rjóma yfir.
  6. Stráið cayenne-pip­ar yfir allt sam­an og berið strax fram með lime skíf­um.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert