Heimabakaða brauðið sem allir elska

Það er fátt betra en nýbakað brauð.
Það er fátt betra en nýbakað brauð. mbl.is/Columbus Leth

Dúnamjúkt og bragðgott brauð var að koma úr ofn­in­um. Réttið okk­ur smjörið eða góða olíu og við erum klár að taka á móti ný­bökuðu brauði með kryd­d­jurt­um.

Heimabakaða brauðið sem allir elska

Vista Prenta

Nýbakað brauð með kryd­d­jurt­um

  • 20 g ger
  • 4 dl vatn
  • 4 msk. ólífu­olía
  • 650 g hveiti
  • 1½ tsk. salt
  • Hand­fylli fersk­ar kryd­d­jurt­ur t.d. basilika, stein­selja eða or­egao.

Aðferð:

  1. Hrærið gerið út í vatnið og bætið 3 msk. af ólífu­olíu út í.
  2. Hellið hveit­inu út í og hnoðið vel sam­an. Bætið salti út í.
  3. Látið deigið hefa sig und­ir röku viska­stykki í 1½ tíma.
  4. Rúllið deigið þunnt út með köku­kefli. Penslið með ólífu­olíu og dreifið gróf­hökkuðum kryd­d­jurt­um yfir. Rúllið deig­inu upp og skerið í 2-3 cm þykk­ar skíf­ur. Leggið skíf­urn­ar ofan á hvor aðra (óreglu­lega) í smurt eld­fast mót og látið hef­ast í 20 mín­út­ur.
  5. Hitið ofn­inn á 225°C og bakið í ofni í 20-25 mín­út­ur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert