Það verður seint logið upp á hann Albert Eiríksson sem gerir nú víðreyst um landið ásamt fríðu föruneyti og tekur hús hjá skemmtilegu fólki.
Nú síðast fór hann í mat til Ásthildar Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri og eiginmanns hennar og var vel tekið á móti gestunum.
Boðið var upp á dýrindis pavlóvu og síðan þetta salat sem ku vera algjört sælgæti.
Matarbloggið hans Alberts er hægt að nálgast HÉR.
Albert mætti í kaffiboð til Ásthildar bæjarstjóra
Salat bæjarstjórans
- Salatblöð (blanda af spínati, lollorosso, boston lettuce, basil og steinselju)
- pikkolotómatar (einn baukur)
- 2 avokado
- einn pakki sykurbaunir (steiktar léttilega á pönnu)
- grilluð paprika (og hýðið tekið af á eftir)
- lúka bláber
- lúka baunaspírur
- 1/2 granatepli
- nokkur jarðaber
- 500 g kjúklingabringur kryddaðar með tandoorikryddi og steiktar í olíu á pönnu.
- Hnetur yfir.
Dressing: olía, balsamedik, dijon sinnep, hunang, salt og pipar. Þeytt saman.
mbl.is/Albert Eiríksson
Ásthildur er að sögn Alberts framúrskarandi gestgjafi.