Átt þú loðinn ferfætling (eða tvífætling)?

Hunda- og kattareigendur takið eftir!
Hunda- og kattareigendur takið eftir! mbl.is/iStock

Ertu með gælu­dýr á heim­il­inu? Ef það búa loðnir fer­fætl­ing­ar heima hjá þér þá kann­astu ef­laust við lít­il hár á ólík­leg­ust stöðum, upp á borðum, hill­um og að sjálf­sögðu á gólf­inu.

Sam­kvæmt dýra­lækn­in­um Jenni­fer Coa­tes, sem sam­tals hef­ur átt 5 hunda og 4 ketti, þá eru gælu­dýra­eig­end­ur að gera stór mis­tök þegar kem­ur að því að ryk­suga upp hár­in af gólf­un­um.

Með því að ryk­suga, þá ertu í raun að blása hár­un­um ennþá víðar um íbúðina - þau feikj­ast í all­ar átt­ir þegar ryk­sug­an fer í gang. Þá er mun betra að moppa gólfið fyrst og fara síðan yfir með ryk­sug­unni ef þú vilt ná upp sem mest af hár­un­um. 

Chor­eograph
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert