Skyrkakan sem slegist er um

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Skyr­kök­ur eru upp­finn­ing sem þakka má fyr­ir dag­lega því þær gera lífið svo miklu miklu betra. Svo eru þær líka eig­in­lega holl­ar þannig að í raun má borða þær við hvert til­efni án þess að það endi illa. 

Þessi kaka kem­ur úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars á Gotteri.is sem er flinkari en flest­ir við að baka og ber kak­an þess glöggt vitni. 

Skyrkakan sem slegist er um

Vista Prenta

Skyrkaka Heiðu

  • 1 pk LU bastog­ne kex
  • 50 g smjör
  • 500 g KEA blá­berja- og jarðaberja­skyr
  • 500 ml rjómi
  • 70 g saxað suðusúkkulaði
  • Blá­ber og jarðaber (um 125 g af hvoru)

Aðferð

  1. Myljið kexið niður (í poka með köku­kefli eða í mat­vinnslu­vél) og bræðið smjörið á pönnu og blandið smjör­inu sam­an við kex­mylsn­una.
  2. Leggið mulið kexið í botn­inn á krús­inni, ýtið aðeins upp á kant­ana og leyfið að kólna al­veg.
  3. Þeytið rjómann og bætið skyr­inu svo var­lega útí með sleif þar til vel blandað.
  4. Setjið skyr- og rjóma­blönd­una ofan á kexið.
  5. Stráið söxuðu suðusúkkulaði yfir skyr­blönd­una og að lok­um berj­un­um.
  6. Kælið í um 1-2 klukku­stund­ir áður en borið er fram, jafn­vel yfir nótt.
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert