Dásamleg döðlukaka með marengs

Við kynnum til leiks dúnamjúka döðluköku með stökkum marengstoppum.
Við kynnum til leiks dúnamjúka döðluköku með stökkum marengstoppum. mbl.is/Columbus Leth

Hér er ein af þess­um kök­um sem henta við hvert til­efni. Það þarf í raun ekki að vera neitt til­efni til að gæða sér á döðlutertu með mar­engs – því hún get­ur verið jafn hvers­dags eins og spari.

Dásamleg döðlukaka með marengs

Vista Prenta

Dá­sam­leg döðlukaka með mar­engs

Döðlukaka:

  • 200 g fersk­ar döðlur án steins
  • 1 tsk. natron
  • 2 dl sjóðandi vatn
  • 125 g smjör
  • 180 g muscovado-syk­ur (óunn­inn hrá­syk­ur)
  • 2 egg
  • 175 g hveiti
  • Salt á hnífsoddi
  • 1 ½ tsk. lyfti­duft
  • ½ tsk. kanill
  • Smjör

Mar­engs:

  • 3 eggja­hvít­ur
  • 1 tsk. sítr­ónusafi
  • 150 g syk­ur

Annað:

  • Smellu­form 25 cm

Aðferð:

  1. Döðlukaka: Hitið ofn­inn í 180°C. Hakkið döðlurn­ar gróf­lega og stráið natron yfir. Hellið sjóðandi heitu vatni yfir og látið standa í 5 mín­út­ur. Blandið sam­an í mat­vinnslu­vél eða með töfra­sprota þar til döðlumass­inn er orðinn slétt­ur.
  2. Pískið smjörið og musca­vado-syk­ur­inn sam­an í 5 mín­út­ur. Hrærið eggj­un­um út í, eitt í einu og sigtið hveiti, salt, lyfti­dufti og kanil út í.
  3. Veltið döðlumass­an­um var­lega út í syk­ur­blönd­una og hellið deig­inu í smurt form, klætt bök­un­ar­papp­ír í botn­inn. Bakið í 35 mín­út­ur – og látið kök­una kólna í form­inu.
  4. Mar­engs: Stillið ofn­inn á 250°C. Pískið eggja­hvít­urn­ar vel og bætið sítr­ónusafa og 4 msk. af sykri út í. Haldið áfram að þeyta þar til hvít­urn­ar eru orðnar al­veg stíf­ar. Veltið rest­inni af sykr­in­um út í með skeið.
  5. Fyllið sprautu­poka með mar­engs og notið stór­an stjörnu­lagaðan stút. Sprautið mar­eng­stopp­um á kök­una og bakið í ofni í 10 mín­út­ur, eða þar til topp­arn­ir eru gyllt­ir að lit.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert