Dýrasta afmæliskaka veraldar?

Fimmtug og fanta flott!
Fimmtug og fanta flott! mbl.is/Variety

Það er lyg­inni lík­ast að söngdív­an Jenni­fer Lopez sé orðin fimm­tug en hún hélt upp á af­mælið sitt nú á dög­un­um og bauð upp á eina glæsi­leg­ustu (og ör­ugg­lega dýr­ustu) köku sem við höf­um séð.

Veisl­an var hald­in á óðals­setri í eigu Gloria Estef­an á Miami. Af­mæliskak­an vakti ómælda at­hygli og var hvorki meira né minna en 10 hæðir og skreytt 24 karata ætu gulli ásamt Sw­arovski kristöll­um. Það var Di­vine Delicacies sem bakaði kök­una sem kostaði litl­ar 1,2 millj­ón­ir og þurfti 5 menn til að bera kök­una inn í hús.

Gestalist­inn var í takt við veislu­höld­in og voru um 250 manns í veisl­unni, stjörn­ur á borð við DJ Kahled, Ryan Seacrest, Ashanti og fleiri. Stans­laus skemmti­atriði og flug­elda­sýn­ing var um kvöldið, en topp­ur­inn var af­mæl­is­gjöf­in frá verðandi eig­in­manni JLo, Alex Rodrigu­ez's – eða eld­rauður Porsche 911 GTS blæju­bíll að verðmæti 140.000 doll­ara. Til ham­ingju með af­mælið Díva Lopez!

Afmæliskaka á 10 hæðum og klædd 24 karata gulli.
Af­mæliskaka á 10 hæðum og klædd 24 karata gulli. mbl.is/​Alaina­sos In­sta­gram Story
mbl.is/​Alaina­sos In­sta­gram Story
mbl.is/​Ani­takarol­ina In­sta­gram Story
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert