Ráða tilfinningar þínar mataræðinu?

Af hverju eigum við það til að troða ofan í …
Af hverju eigum við það til að troða ofan í okkur mat? mbl.is/bbc.com

Borðum við því við erum svöng eða af því að okk­ur líður vel eða illa? Erum jafn­vel stressuð eða leið! Sum okk­ar erum til­finn­inga­lega tengd mataræðinu og sveifl­umst fram og til baka með hvað við lát­um ofan í okk­ur.

Við borðum of mikið
Við get­um átt það til að borða yfir okk­ur til að deyfa ákveðnar til­finn­ing­ar. Þegar þér finnst þú þurfa að borða af ann­arri ástæðu en hungri einu sam­an, dragðu þá djúpt inn and­ann og settu at­hygl­ina á and­ar­drátt­inn. Taktu eft­ir því hvort þú sért svang­ur/​svöng í raun og veru og hvað það er ná­kvæm­lega sem þig lang­ar í. Farðu jafn­vel úr því um­hverfi sem þú ert stadd­ur/​stödd í og drekktu stórt glas af vatni. Leiddu hug­ann að því sem þú ert þakk­lát/​ur fyr­ir akkúrat á þessu augna­bliki.

Nú­vit­und
Það er gott að staldra aðeins við og leiða hug­ann að því sem er að ger­ast í kring­um okk­ur. Vera í nú­inu. Hér eru nokk­ur atriði sem hafa má í huga þegar við erum að borða til að njóta bet­ur mat­ar­ins.

  • Slökktu á sjón­varp­inu eða legðu frá þér bók­ina sem þú ert að lesa, allt sem tek­ur at­hygl­ina þína frá matn­um sjálf­um. Og alls ekki liggja yfir sím­an­um á meðan þú borðar.
  • Reyndu að meta mat­inn sem er fyr­ir fram­an þig, hvaðan hann kem­ur.
  • Legðu frá þér hnífa­pör­in við hvern munn­bita.
  • Tyggðu mat­inn vel og virtu fyr­ir þér bragðið.
  • Taktu eft­ir því þegar mag­inn byrj­ar að verða sadd­ur.
  • Taktu eft­ir því hvernig þér líður á meðan þú borðar og eft­ir mat­inn.
Stress getur fengið okkur til að borða of mikið.
Stress get­ur fengið okk­ur til að borða of mikið. mbl.is/​scitecheuropa.eu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert