Stórmerkilegar staðreyndir um tengsl svefns og kíví

Finnst þér kíví góður? Þá skaltu narta í hann fyrir …
Finnst þér kíví góður? Þá skaltu narta í hann fyrir háttinn í stað þess að detta í snakkpokann. mbl.is/simple.wikipedia.org

Ef þér finnst gott að fá þér eitt­hvað smá kvöldsn­arl, þá skaltu fá þér kívi.

Rann­sókn hef­ur verið gerð á svefni og kíví og í ljós kom að þeir sem borðuðu tvo kíví um klukku­stund fyr­ir hátta­tíma áttu auðveld­ara með að sofna. Í raun voru það 35 pró­sent sem sofnuðu hraðar og 13 pró­sent þeirra sem tóku þátt, sváfu leng­ur.

Ástæðan gætu verið andoxun­ar­víta­mín­in C og E sem hjálpa til við að senda tauga­boð til heil­ans, eða hversu hátt serótón­ín finnst í ávext­in­um. Hvor sem er, þá er kíví alltaf betri kost­ur en snakk­pok­inn.

Mynd/​Thinkstock.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert