Svona er best að nota vodka í rúminu

Vodka er ekki bara hressandi drykkur á laugardagskvöldi - það …
Vodka er ekki bara hressandi drykkur á laugardagskvöldi - það er einnig frábært til þrifa. mbl.is/naturallysavvy.com

Við erum ekki að biðja þig um að draga fram lime og tonic – en vod­ka­flösk­una vilj­um við sjá við næstu þrif.

Vod­ka kem­ur ekki bara við sögu á góðu laug­ar­dags­kvöldi þar sem það get­ur þrifið rúm­dýn­una þína bet­ur en nokkuð annað búðarkeypt hreinsi­efni. Alkó­hólið í vod­k­anu drep­ur lykt­andi bakt­erí­ur ásamt því að sótt­hreinsa dýn­una þína.

Það eina sem þú þarft að gera er að hella vod­ka í úðabrúsa og úða því jafnt yfir dýn­una. Leyfðu því al­veg að þorna áður en þú set­ur hreint lak og nýtt á sæng­urn­ar. En þessi aðferð á einnig við um áklæði á sóf­um og jafn­vel fatnaði svo eitt­hvað sé nefnt.

Ljós­mynd/​Thinkstockp­hotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert