Frábær fiskréttur sem þú verður að prófa

Fínasti fiskréttur með kókos og lime - borinn fram með …
Fínasti fiskréttur með kókos og lime - borinn fram með hrísgrjónum og brokkolí. mbl.is/bbcgoodfood.com

„Fínn og flott­ur“ – það má vel segja það um þenn­an fisk­rétt sem við kynn­um hér til leiks. Hrá­efni á borð við lime, hvít­lauk og kó­kos mun leika við bragðlauk­ana sem aldrei fyrr.

Frábær fiskréttur sem þú verður að prófa

Vista Prenta

Fín­asti fisk­rétt­ur með kó­kos og lime

  • 2 lime
  • 100 g crea­med coconut, skorið niður
  • 1 grænn chilli, saxaður
  • Hand­fylli kórí­and­er
  • Engi­fer, skorið niður
  • 2 hvít­lauksrif
  • ½ tsk. fiskisósa
  • 4 fisk­bit­ar, hvít­ur fisk­ur að eig­in vali
  • Soðin hrís­grjón
  • Brok­kolí

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 200°C.
  2. Rífið með rif­járni utan af li­me­berk­in­um  og kreistið djús­inn úr. Blandið vel sam­an við chili, kórí­and­er, kó­kos, engi­fer, hvít­lauk og fiskisósu. Smakkið til og bætið við fiskisósu ef þörf er á.
  3. Setjið fisk­inn á bök­un­ar­plötu  og dreifið blönd­unni yfir fisk­inn. Bakið í 15-20 mín­út­ur eða þar til bakaður í gegn.
  4. Berið fram með soðnum hrís­grjón­um og soðnum brok­kolí­stöngl­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert