Hér er ein af þessum uppskriftum sem þú getur nánast gert blindandi og inniheldur ekkert „vesen“. Allt mjög einfalt í þessari matargerð og fá hráefni. Að sama skapi er þetta einstaklega bragðgóð uppskrift sem allir á heimilinu munu elska. Og ef svo ólíklega vill til að einhver afgangur verði á þessum kjúklingarétti, þá geymist hann í allt að 4 daga inn í ísskáp í lofttæmdu íláti.
30 mínútna pestó kjúlli (fyrir 4)
- 4 bollar kirsuberjatómatar
- 1 msk. ólífuolía
- sjávarsalt og pipar
- 4 kjúklingabringur frá Ali
- ¼ bolli grænt pestó
Aðferð:
- Hitið ofninn á 200°C.
- Leggið tómatana á bökunarpappír á bökunarplötu. Stráið olíu yfir ásamt salti og pipar og veltið aðeins upp úr blöndunni. Dreyfið úr tómötunum á plötunni.
- Saltið og piprið bringurnar og leggið á bökunarplötuna. Setjið pestó ofan á hverja bringu.
- Hitið í ofni þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og tómatarnir bakaðir eða hafa jafnvel sprungið – sirka 25-30 mínútur.
- Berið fram kjúklinginn með tómötunum og jafnvel auka pestó til hliðar.
mbl.is/Joe Lingeman/Kitchn