Hlébarðabrauðið sem fólk er að tryllast yfir

Hversu geggjað brauð! Hlébarðabrauð er það allra heitasta í dag.
Hversu geggjað brauð! Hlébarðabrauð er það allra heitasta í dag. mbl.is/© nasilemaklover

Fólk er gjör­sam­lega að missa sig yfir bakstri á svo­kölluðu „hlé­b­arðabrauði“ þar sem út­lit þess minn­ir á blett­ótt­an tíg­ur. Í grunn­inn er brauðið ger­deig með smá­veg­is af sykri og kakói. Deig­inu er svo skipt upp í þrjá hluta og fær hver hluti sinn lit. Ef þetta er ekki brauðið til að koma gest­um helgar­inn­ar á óvart, þá er ekk­ert að fara að gera það.

Hlébarðabrauðið sem fólk er að tryllast yfir

Vista Prenta

Hlé­b­arðabrauðið sem fólk er að tryll­ast yfir

  • 375 g hveiti
  • 35 g syk­ur
  • ½ tsk. salt
  • 1 tsk. þurr­ger
  • 250 g mjólk
  • 20 g mjúkt smjör

Fyr­ir brúna bletti:

  • 15 g kakó
  • 10 g mjólk

Fyr­ir dökk­brúna bletti:

  • 6 g dökkt kakó
  • 5 g mjólk

Aðferð:

  1. Blandið sam­an hveiti, sykri, salti, þurr­geri og mjólk.
  2. Bætið smjöri út í og hnoðið þar til deigið er orðið slétt og fínt.
  3. Takið um 320 g af deig­inu til hliðar og setjið í skál. Látið hef­ast þar til deigið hef­ur tvö­faldað sig.
  4. Bætið mjólk og kakói út í rest­ina af deig­inu og blandið vel sam­an.
  5. Takið um 205 g af brúna kakó­deig­inu til hliðar og látið það hef­ast þar til það hef­ur tvö­faldað sig.
  6. Bætið dökku kakói og mjólk út í brúna kakó­deigið og látið tvö­falda sig.
  7. Grunndeig (ljóst): Skiptið deig­inu upp í 2x 55 g og 5x 40 g.
  8. Brúna deigið: Skiptið deig­inu upp í 2x 38 g og 5x 25 g.
  9. Dökk­brúna deigið: Skiptið deig­inu upp í 2x 36 g og 5x 23 g.
  10. Rúllið öll­um deig­bút­un­um út eins og sýnt er á mynd­inni og raðið sam­an. Skerið lengj­urn­ar niður í þá lengd sem bök­un­ar­mótið er og raðið í.
  11. Látið brauðið hef­ast allt upp í 90% af form­inu og þá und­ir loki. Mun lik­leg­ast taka um 1 tíma.
  12. Bakið í 180° heit­um ofni í 30 mín­út­ur. Hálf­tími er sirka tím­inn á blæstri, svo stingið í brauðið til að kanna hvort það sé til­búið. Berið fram með nu­tella.
Hér er búið að skipta deiginu upp og setja kakó …
Hér er búið að skipta deig­inu upp og setja kakó sam­an við. mbl.is/© ​nasi­lemaklover
Litunum er skipt upp í ákveðið marga hluta.
Lit­un­um er skipt upp í ákveðið marga hluta. mbl.is/© ​nasi­lemaklover
Samsetning.
Sam­setn­ing. mbl.is/© ​nasi­lemaklover
Lengjurnar skornar til svo þær passi í bökunarmót.
Lengj­urn­ar skorn­ar til svo þær passi í bök­un­ar­mót. mbl.is/© ​nasi­lemaklover
mbl.is/© ​nasi­lemaklover
mbl.is/© ​nasi­lemaklover
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert