Hvítlauksristaðir humarhalar

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Hum­ar er herra­manns­mat­ur og hér gef­ur að líta upp­skrift sem er í senn af­skap­lega ör­ugg og bragðgóð. Með hrá­efni eins og hum­ar ber að vanda til verka og passa upp á að ofelda hann hvorki né eyðileggja með ein­hverri vit­leysu. Þessi upp­skrift er úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars­dótt­ur á Gotte­rí.is og er því gæðavottuð og al­gjör­lega upp á tíu.

Hvít­lauksristaðir humar­hal­ar

Vista Prenta

Hvít­lauksristaðir humar­hal­ar

Fyr­ir 4-5

  • 1.400 g stór hum­ar
  • 300 g smjör
  • 4 hvít­lauksrif
  • 2 msk. söxuð fersk stein­selja
  • salt, pip­ar og hvít­lauks­duft

Aðferð:

  1. Kljúfið humar­inn þegar hann er hálf­fros­inn og fjar­lægið „skítarönd­ina“. Mér finnst best að gera þetta und­ir mjórri vatns­b­unu og þerra síðan humar­inn áður en ég raða hon­um í bök­un­ar­skúffu (þið þurfið tvær bök­un­ar­skúff­ur fyr­ir þetta magn af humri).
  2. Bræðið sam­an smjör, pressuð hvít­lauksrif og stein­selju.
  3. Hellið smjör­blönd­unni jafnt yfir humar­hal­ana í skúff­un­um með mat­skeið, setjið vel af smjöri á hvern bita og kryddið síðan með salti, pip­ar og hvít­lauks­dufti í lok­in.
  4. Grillið í ofni við 230°C í 5-7 mín­út­ur eða þar til hal­arn­ir byrja aðeins að „krull­ast“ upp, þá má taka þá strax út úr ofn­in­um.
  5. Gott er að hella höl­un­um í fat, pott eða annað og hella rest­inni af smjör­inu yfir, hafa síðan skeið við hönd­ina til þess að geta sett nóg af smjöri á hal­ana þegar þeir koma á disk­ana.
  6. Berið fram með góðu hvít­lauks­brauði og sal­ati. Ef þið bakið ekki hvít­lauks­brauð þá finn­ast mér sneiðarn­ar sem eru seld­ar frosn­ar henta vel með þessu. Gott að leggja þær á disk­inn og fá þær til að drekka aðeins í sig smjörið. Sal­atið að þessu sinni sam­an­stóð af kletta­sal­ati, baby spínati, blá­berj­um, feta­osti og brauðten­ing­um.
mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert