Þegar þú ert til í að prófa eitthvað nýtt!
mbl.is/Columbus Leth
Prófum eitthvað nýtt! Nú köstum við okkur út í vöfflubakstur og berum þær fram með ferskum laxi og alfaspírum.
Vöfflur með reyktum lax
- 100 g spínat
- 3 egg
- 3 dl mjólk
- 300 g hveiti
- 1 msk. lyftiduft
- 1 tsk. salt
- Pipar
- 125 g smjör
Annað:
- 1 bakki alfaspírur
- 300 g reyktur lax í skífum
- 1,5 dll sýrður rjómi
- Ferskt dill
Aðferð:
- Blandið spínati, eggi og mjólk saman í blandara. Bætið hveiti út í ásamt lyftidufti, salti og pipar.
- Bræðið smjörið og leyfið því aðeins að brúnast. Hellið svo smjörinu út í spínatblönduna og látið deigið hvíla í 20 mínútur.
- Bakið vöfflurnar í vöfflujárni.
- Berið nýbakaðar vöfflur fram með reyktum laxi, sýrðum rjóma, alfaspírum og dilli.