Hafið þið prófað að grilla ferskjur og setja ofan á brauð? Það er alveg sturlað gott og hlýtur alla þá athygli sem hugsast getur hjá þeim sem prófa. Hér er uppskrift að grilluðum ferskjum á baguette brauði með basil-smjöri.
Þegar grillaðar ferskjur verða stjarnan í partíinu
- 90 g pancetta (má nota beikon)
- ⅓ bolli ósaltað smjör, mjúkt
- 3 msk fersk basilika, söxuð
- 1 hvítlauksrif, marið
- Salt
- 1 stórt baguette brauð
- 3 ferskjur, skornar í helming og steinninn fjarlægður
- 1 kúla burrata ostur
- Fersk basilika til að skreyta
Aðferð:
- Hitið grillið á hæsta hita.
- Hitið pönnu á meðal hita og setjið pancetta út á. Steikið þar til stökkt. Leggið á eldhúspappír og leyfið fitunni að leka af.
- Hrærið saman í skál, smjör, ferskri basiliku, hvítlauk og salti. Skerið baguette brauðið í sneiðar og smyrjið smjörinu á brauðið (má alveg smyrja báðum megin ef vill). Leggið sneiðarnar á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Skerið ferskjurnar til helminga og fjarlægið steininn. Penslið með ólífuolíu og saltið og piprið. Leggið þær einnig á bökunarplötuna og takið með út á grillið.
- Leggið ferskjurnar með skornu hliðina á grillið í 4-5 mínútur og snúið svo við og grillið áfram í 1-2 mínútur.
- Á meðan ferskjurnar eru á grillinu, leggið þá brauðið þar líka. Brauðið þarf ekki nema 1-2 mínútur og munið að snúa.
- Leggið aftur brauð og ferskjur á bökunarplötuna og farið með inn.
- Skerið ferskurnar í sneiðar þegar þær hafa kólnað örlítið.
- Togið burrata ostinn í sundur og leggið ofan á hverja brauðsneið. Toppið með grillaðri ferskju og pancetta. Stráið ferskri basiliku yfir og berið strax fram.