Ostafylltar kjúklingabringur í rjómalegi

mbl.is/Linda Ben

Þar sem það er hálf þung­lama­legt yfir land­inu er ekki úr vegi að fá sér eitt­hvað ómót­stæðilegt í kvöld­mat og hvað hljóm­ar bet­ur en osta­fyllt­ar kjúk­linga­bring­ur í rjóma­legi.

Það er eng­in önn­ur en Linda Ben sem á heiður­inn að þess­ari dá­semd­ar upp­skrift.

Ostafylltar kjúklingabringur í rjómalegi

Vista Prenta

Osta­fyllt­ar kjúk­linga­bring­ur í rjóma­legi

  • 4 kjúk­linga­bring­ur

  • 1 kryddost­ur með pip­ar frá Örnu Mjólk­ur­vör­um

  • Rós­marín og timj­an krydd

  • 8 sneiðar Serrano skinka

  • 2-3 dl rjómi

  • 1 tsk. kjúk­lingakraft­ur

  • Ferskt rós­marín

Aðferð:

  1. Kveikið á ofn­in­um og stillið á 200ºC.

  2. Þar sem þykk­asti hluti bring­anna er, stingið hníf inn í end­ann og myndið vasa fyr­ir ostsneiðar, eins djúp­ar og hægt er án þess að gera gat.

  3. Skerið ost­inn í u.þ.b. 0,5 cm þykk­ar sneiðar og setjið inn í “vas­ann” á kjúk­linga­bring­un­um. Kryddið með rós­marín og timj­an og vefjið svo 2 stk serrano skinku utan um hverja bringu. Raðið í eld­fast mót og bakið inn í ofni í 20 mín.

  4. Þegar 20 mín eru liðnar, hellið rjóm­an­um út á mótið og blandið sam­an kjúk­lingakrafti sam­an við. Bakið áfram í 20 mín.

  5. Takið út úr ofn­in­um og kryddið (og skreytið) með fersku rós­marín.

Kart­öflu smælki

  • 400 g litl­ar kart­öfl­ur með hýði

  • 2-3 msk. ólífu olía

  • Salt og pip­ar

  • Rós­marín krydd

  • Timj­an krydd

Aðferð:

  1. Hreinsið kart­öfl­urn­ar vel und­ir köldu vatni og nuddið öll óhrein­indi sem gætu leynst af. Skerið þær niður í 4 hluta hvor. Raðið í eld­fast mót.

  2. Hellið olíu yfir og kryddið eft­ir smekk, blandið öllu vel sam­an.

  3. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 30-40 mín.

mbl.is/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert