Þetta verður þú að vita um handklæði

Hvernig meðhöndlar þú handklæðin?
Hvernig meðhöndlar þú handklæðin? mbl.is/davidjones.com

Hand­klæði þurrka sig ekki sjálf né hreinsa, það eitt er á hreinu. En hvað er það sem við mætt­um hafa í huga varðandi hand­klæði og notk­un þeirra?

Hand­klæði á snaga
Það er í góðu lagi að hengja hand­klæði upp á snaga þó að hand­klæðastöng sé betri kost­ur. En að hengja tvö hand­klæði upp á sama krók­inn er ekki góð hug­mynd. Þá kemst ekki rak­inn ekki úr hand­klæðunum og verða súr fyr­ir vikið. Það sama gildi um hand­klæði á stöng – ekki hengja þau hvert ofan á annað.

Hversu oft á að þvo hand­klæði?
Mis­jafn­ar skoðanir eru um hversu oft eigi að þvo hand­klæði og vilja marg­ir henda þeim í þvott eft­ir eina notk­un. En hrein­læt­is­spek­úl­ant­ar vilja meina að þú get­ir vel notað hand­klæði í viku áður en þú hend­ir því í þvotta­körf­una.

Alltaf sama hand­klæðið
Það er pínu skondið hvað við fest­umst við eitt ákveðið hand­klæði og not­um alltaf það sama – eig­um okk­ar upp­á­halds. Það er líka flott að dreifa „álag­inu“ á önn­ur hand­klæði nema þú vilj­ir slíta þessu eina út.

Of mikið þvotta­efni
Við erum yf­ir­leitt frek­ar óhefluð þegar kem­ur að því að skammta þvotta­efni og setj­um oft­ar en ekki of mikið. Of mikið af þvotta­efni er ekki að gera þvott­inn þinn hreinni – þvert á móti. Of mikið af þvotta­efni í hand­klæðum get­ur leitt til að ekki skol­ist allt úr og þú munt þurrka þér með þvotta­efn­is­leif­um.

Rétt hita­stig
Þvoðu hand­klæðin á 60° hita og á suðu inn á milli. Það er nauðsyn­legt að ná að drepa all­ar bakt­erí­ur sem hand­klæðin geyma.

Hristu hand­klæðin
Stór­gott ráð til að halda hand­klæðunum í standi er að hrista þau aðeins og strekkja á þeim áður en þú heng­ir þau upp til þerr­is.

mbl.is/​iStock
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert