Stórkostlegir skinkumánar

Skinkumánar er fullkomnir að eiga í frysti fyrir svanga skólakrakka.
Skinkumánar er fullkomnir að eiga í frysti fyrir svanga skólakrakka. mbl.is/Tia Borgsmidt

Skinku­mán­ar er sí­vin­sæl­ir og það er garg­andi snilld að eiga slíka alltaf til í frysti. Þá er upp­lagt að taka nokk­ur stykki út úr frysti að morgni og láta þiðna á borði þar til krakka­skar­inn kem­ur heim úr skól­an­um – svang­ir að vanda.

Stórkostlegir skinkumánar

Vista Prenta

Stór­kost­leg­ir skinku­mán­ar (30 stk)

  • 25 g ger
  • 4 dl volgt vatn
  • 2 tsk. salt
  • 120 g dur­um heil­hveiti
  • 450 g hveiti

Annað:

  • 1,5 dl pizzasósa
  • 150 g reykt skinka
  • 100 g rif­inn pizza­ostr
  • Or­egano
  • Ólífu­olía
  • 1 egg til pensl­un­ar

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í vatn­inu. Bætið öðrum hrá­efn­um út í.
  2. Hnoðið deigið þar til það verður slétt og fínt. Látið hef­ast í 1 tíma.
  3. Skiptið deig­inu upp í 30 stk og þrýstið þeim út í flata hringi.
  4. Smyrjið pizzasós­unni á og dreifið saxaðri skinku og osti yfir. Stráið or­egano og dreypið smá olíu yfir.
  5. Brjótið sam­an í hálf­mána og leggið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  6. Penslið með eggi og stráið or­egono yfir.
  7. Bakið í ofni við 225° í 12-15 mín­t­úr.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert