Fimm mistök sem við gerum í bakstri

Hver hef­ur ekki bakað boll­ur sem enda á að verða pínu harðar og við skilj­um ekk­ert hvað fór úr­skeiðis? Hér fyr­ir neðan eru nokk­ur atriði sem vert er að hafa í huga næst er við setj­um á okk­ur svunt­una og byrj­um að baka.

Píska egg of lengi
Ef þú písk­ar egg of lengi byrja þau að skilja sig og það vilj­um við ekki. Hættu að píska þegar mass­inn er orðinn krem- og loft­kennd­ur, og mjall­hvít­ur.

Klikka á ger­inu
Þegar þú leys­ir ger upp í vatni á það að vera um 35 gráðu heitt. Passið hit­ann! Ef vatnið er of heitt miss­ir þú virkn­ina í ger­inu og ef vatnið er of kalt get­ur það tekið of lang­an tíma fyr­ir gerið að virka. Þar fyr­ir utan má aldrei setja salt sam­an við ger áður en þú set­ur hveiti.

Þú hnoðar of lítið
Ef þú hnoðar ekki deigið nægi­lega mikið nær gerið ekki að byrja að virka og það get­ur gert brauðið þitt hart. Ef þú hnoðar deigið nægi­lega mikið mun það verða mjúkt og teygj­ast vel á því.

Láta hef­ast of lengi
Það er mjög mik­il­vægt að fylgja upp­skrift­inni og þeim tíma sem þar er gef­inn upp. Ef þú læt­ur deig hef­ast of lengi áttu á hættu að það hef­ist of mikið þar til það fell­ur sam­an og brauðið verður hart að lok­um.

Að baka gróf­ara brauð
Dur­um og rúg­hveiti eru þyngri en venju­legt hveiti sem þýðir að deigið þarf meiri tíma en vani er til að hef­ast, því gerið á erfiðara með að vinna í þyngri hveitigerðum.

Það er að ýmsu að huga þegar kemur að bakstri …
Það er að ýmsu að huga þegar kem­ur að bakstri með t.d. ger. mbl.is/​Bulls
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert