Svona eyðir þú vondri lykt á baðherberginu

Við notum klósettrúlluna sem leynivopn fyrir góðan ilm inn á …
Við notum klósettrúlluna sem leynivopn fyrir góðan ilm inn á baðherbergið. mbl.is/iStock

Sal­ernið lykt­ar ekki alltaf sem best og þá drög­um við fram ilm­brúsa eða kveikj­um á kert­um. En það get­ur reynst kostnaðarsamt til lengri tíma þegar aðrar lausn­ir eru í boði og þá kem­ur kló­set­trúll­an að góðum not­um.

Kló­set­trúll­an mun klára verkið! Settu nokkra dropa af ilm­kjarna­ol­íu á rúll­una og í hvert skipti sem þú dreg­ur hana út mun ilm­ur­inn dreifast um rýmið.

Það sem til þarf:

  • Kló­set­trúlla
  • Ilm­kjarna­ol­ía eða eig­in vali. Sítr­ónuilm­ur gæti verið meira eins og þú sért ný­bú­inn að þrífa á meðan lavand­er gef­ur ró­legt yf­ir­bragð.
  • Settu 5 dropa inn­an á kló­set­trúll­una (á þykka papp­ír­inn) og settu hana aft­ur á hald­ar­ann.
  • Njóttu þess að hafa góða ang­an næst þegar þú dreg­ur rúll­una út.
Það er líka hægt að nota þetta góða ráð á …
Það er líka hægt að nota þetta góða ráð á blautþurrk­ur. Getty Ima­ges/​iStockp­hoto
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert