Hvað segja þarmarnir um þessar matvörur?

Getty images

Hvað er gott fyr­ir lík­amann að borða – hvað segja þarma­bakt­erí­urn­ar um þann mat sem við leggj­um okk­ur til munns? Við vilj­um alls ekki vera með uppþembu all­an dag­inn eft­ir að hafa borðað eitt­hvað sem hent­ar okk­ur ekki vel.

JÁ-list­inn:

Græn­meti er mjög gott fyr­ir þarm­ana. Reyndu alltaf að koma græn­meti fyr­ir í máltíðum dags­ins. Borðaðu það hrátt, settu það í súp­ur, smoot­hies, omm­elett­ur eða aðra rétti.

Ber má setja út á graut, jóg­úrt eða sal­at. Reyndu að fá þér nokk­ur ber yfir dag­inn.

Fisk­ur   er nauðsyn­leg­ur á mat­ar­borðið oft­ar en einu sinni í viku. Það er t.d. mjög gott að gufu­sjóða fisk­inn.

Kjúk­ling­ur – hann er gott að kaupa fersk­an. Eft­ir að þú hef­ur haft hann í mat­inn, notaðu þá af­ganga sem álegg næsta dag.

Hnet­ur, möndl­ur og fræ – eru frá­bær í morg­un­mat­inn, sem milli­mál eða út á sal­atið.

Hrís­grjón, kínóa og kart­öfl­ur – eru frá­bær kvöld­mat­ur og henta þörm­un­um vel.

Bel­gá­vext­ir – þurfa að liggja í bleyti áður en þú legg­ur þá þér til munns því ann­ars er hætta á að þú fáir maga­verk.

Dökkt súkkulaði – er í lagi í hófi. Saxaðu t.d. súkkulaði yfir jóg­úrt­ina þína.

Vatn, te og kaffi – flest höf­um við þörf á tveim­ur lítr­um af vatni á dag. Og verðir þú þreytt/​ur á að drekka venju­legt vatn alla daga er upp­lagt að setja sítr­ónusneiðar, fros­in ber eða kryd­d­jurtir út í vatnið.

NEI-list­inn:

Til­bún­ir rétt­ir og skyndi­biti – þegar tím­inn er lít­ill til ann­ars. En mundu að hafra­graut­ur, omm­eletta eða gott brauð með áleggi get­ur einnig flokk­ast sem skyndi­biti af holl­ari kant­in­um.

Syk­ur – er alltaf gott að skera niður og reyna forðast mat­vör­ur sem inni­halda mik­inn syk­ur eins og sæl­gæti, kex, kök­ur, mar­melaði o.fl.

Nauta-, lamba- og svína­kjöt – er al­veg í lagi að borða en reyndu frek­ar að halla þér að kjúk­linga­kjöti, eggj­um, baun­um og fiski þar sem það fer mun bet­ur með þarm­ana.

Unnið álegg – má al­veg skipta út með avóka­dói, osti, tómöt­um eða ban­ana.

Til­bún­ar sós­ur – er hent­ugt að kaupa, en þú get­ur einnig búið þær til sjálf/​ur. Prófaðu næst að búa til þitt eigið gvaka­móle og það mun koma á óvart hversu vel það smakk­ast.

Sæt­indi – eru ekki góð fyr­ir okk­ur á neinn máta. Reyndu að venja þig á að það þurfi ekki allt að vera sætt á bragðið.

Getty ima­ges
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert