Þrifagildrurnar sem flestir falla í

Þrif skora oft ekki hátt á vinældalistann hjá mörgum.
Þrif skora oft ekki hátt á vinældalistann hjá mörgum. mbl.is/Shutterstock

Flest vilj­um við ljúka heim­il­isþrif­un­um eins fljótt af og mögu­legt er. En það er svo oft þannig að þegar við flýt­um okk­ur of mikið end­um við á því að eyða meiri tíma í verkið.

Ryk­suga fyrst

Gleymdu því að byrja á því að ryk­suga áður en þú þurrk­ar af úr hill­un­um. Þá þarftu að fara yfir gólfið allt aft­ur.

Þrífa glugg­ana á sól­ar­dög­um

... er al­gjört bann! Þú sérð kannski skít­inn bet­ur í sól­inni en glugg­inn þorn­ar líka fyrr og þar af leiðandi koma rák­ir á glerið ef þú ert ekki eld­snögg­ur að þurrka bleyt­una og sáp­una burt.

Þú skipt­ir ekki um ryk­sugu­bursta

Þegar þú ryk­sug­ar gólfið og ferð svo beint með ryk­sug­una upp í sófa og ryk­sug­ar hann – þá dreif­ist allt kuskið og hár­in und­an burst­an­um og þú end­ar með því að þurfa renna yfir sóf­ann aft­ur til að þrífa upp eft­ir sjálf­an þig.

Þú skol­ar allt of vel fyr­ir uppþvotta­vél­ina

Flest skol­um við diska og annað leirtau það vel að það þarf varla snún­ing með uppþvotta­vél­inni, við gæt­um allt eins klárað verkið og vaskað upp. Það er í lagi að taka mat­ar­leif­arn­ar af disk­un­um en það er al­gjör óþarfi að skola þá mikið því uppþvotta­vél­in er hönnuð til að sjá um verkið. Frek­ar að spara dýr­mæta vatnið!

Þú leyf­ir ekki efn­um að virka

Kann­astu við að spreyja efni t.d. inn í sturt­una og byrja strax að skrúbba? Leyfðu efn­inu að virka áður en þú hefst handa – ann­ars end­ar þú súr á svip­inn því þú hefðir allt eins getað sleppt þessu; hvorki efnið né skrúbbið virk­ar. Gefðu þessu tíma. Spreyjaðu á flöt­inn sem þú ætl­ar að þrífa og gerðu eitt­hvað annað á meðan efnið tek­ur við sér og komdu svo inn í verkið af full­um krafti.

Stóru heim­ilis­tæk­in

Ekki gleyma að þrífa stóru heim­ilis­tæk­in. Ryk­sug­una, þvotta­vél­ina, þurrk­ar­ann og uppþvotta­vél­ina svo eitt­hvað sé nefnt. Við vilj­um alls ekki að stóru tæk­in bili á ög­ur­stundu.

Þessi mynd segir allt sem segja þarf. Það er gott …
Þessi mynd seg­ir allt sem segja þarf. Það er gott að þrífa...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert