Pönnusteiktar ketópylsur með avókadóeggjasalati

mbl.is/

Nú er hægt að kaupa pyls­ur án hveit­is, kart­öfl­umjöls og syk­urs og því ber svo sann­ar­lega að fagna. Það eru í raun marg­ar teg­und­ir án þess­ara óæski­legu auka­efna og lyk­ill­inn er að lesa aft­an á umbúðirn­ar. Kol­vetnainni­haldið ætti að vera frá 0-3 g að há­marki.

Fyr­ir 2 | 7 g af kol­vetn­um | Eld­un­ar­tími: 15 mín­út­ur

Þú þarft að eiga: Smjör, svart­an pip­ar og gróft salt

Að gera: Settu upp pott með sjóðandi vatni

Pönnusteiktar ketópylsur með avókadóeggjasalati

Vista Prenta

Pönnu­steikt­ar ketópyls­ur með avóka­dó­eggja­sal­ati

  • 4 pyls­ur, fleiri ef þær eru minni, miða við 175 g á mann
  • 2 harðsoðin egg
  • 2 avóka­dó
  • 2 msk. maj­ónes
  • 1 msk. ólífu­olía
  • ¼ rauðlauk­ur
  • ½ búnt fersk stein­selja, söxuð smátt

SVONA GER­IR ÞÚ:

1. Settu egg­in í sjóðandi vatn í 8 mín­út­ur og kældu þau svo vel á eft­ir. Skerðu avóka­dó í milli­stóra bita og rauðlauk smátt.

2. Skerðu nokkr­ar rák­ir í pyls­urn­ar og steiktu þær í klípu af smjöri þar til þær eru vel brúnaðar. Lækkaðu hit­ann og haltu þeim volg­um meðan þú klár­ar sal­atið.

3. Blandaðu sam­an maj­ónesi, olíu, vel af svört­um pip­ar og góðri klípu af salti. Hrærðu allt vel sam­an og bættu í þetta avóka­dó, rauðlauk og eggj­um sem þú sax­ar gróft. Berðu sal­atið fram með pyls­un­um.

mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert