Ketópítsa sem klikkar ekki

mbl.is/

Ketópítsur er alls kon­ar en þessi ætti að koma ykk­ur skemmti­lega á óvart. Hér erum við með hinn ynd­is­lega kúr­bít í aðal­hlut­verki en hægt er að skipta hon­um út fyr­ir annað græn­meti ef þið viljið.

Ketópítsa sem klikkar ekki

Vista Prenta

Ketópítsa sem kem­ur á óvart

Fyr­ir 2 | 7 g af kol­vetn­um | Eld­un­ar­tími 25 mín­út­ur

Þú þarft að eiga: ólífu­olíu og gróft salt

Að gera: Hitaðu ofn­inn í 200°C og blást­ur

Í botn­inn:

  • 400 g rif­inn kúr­bít­ur í mat­vinnslu­vél eða með rif­járni
  • 2 egg
  • 100 g rif­inn ost­ur
  • góð klípa af salti

Áleggið:

  • 2 msk pítsusósa
  • pepp­eróní
  • svepp­ir
  • svart­ar ólíf­ur, saxaðar
  • fersk basilíka, söxuð smátt
  • 100 g rif­inn ost­ur

AÐFERÐ:

1. Þú verður að ná sem mest­um vökva úr kúr­bítn­um og nóg er að taka lúku í einu og kreista vökv­ann úr með báðum hönd­um yfir vask­in­um og setja hann svo í stóra skál. Bættu við af­gang­in­um af hrá­efn­un­um og blandaðu öllu vel sam­an og dreifðu mjög þunnt á bök­un­ar­papp­ír.

2. Bakaðu botn­inn í 10-15 mín­út­ur. Taktu hann þá út og settu sós­una og hrá­efn­in á hann og bakaðu í aðrar 10 mín­út­ur eða þar til áleggið hef­ur fengið góðan lit. Settu basilík­una yfir eft­ir að píts­an er kom­in úr ofn­in­um og væna slettu af ólífu­olíu.

mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert