Kókkakan sem smakkaðist ótrúlega

mbl.is/Gunnar Sverrisson

Kak­an með langa nafnið; Coca Cola-rjóma­osta-marm­arasúkkulaðikaka með pek­an­hnet­um og hvítu súkkulaði, segja þau Halla Bára og Gunni á Home & Delicious um þessa köku sem er vel þess virði að prófa.

„Ótrú­lega mjúk og bragðmik­il kaka, góður eft­ir­rétt­ur og kókið kem­ur skemmti­lega inn með rjóma­ost­in­um. Aldrei prófað að nota kók í köku en það virk­ar ansi hreint ótrú­lega og maður finn­ur al­veg fyr­ir því. Rjóma­ost­ur­inn er brædd­ur með smjöri og er full­kom­inn til að kalla fram marm­ara­áhrif­in. Veru­lega þess virði að prófa og njóta til fulln­ustu.“

Kókkakan sem smakkaðist ótrúlega

Vista Prenta

Kókkak­an sem smakkaðist ótrú­lega

Þur­refni:

  • 2 b hveiti (250 g)
  • 1 tsk natron
  • ¼ b kakó (30 g)
  • 1 ¼ b syk­ur (150 g)

Hrærið þur­refn­in vel sam­an með gaffli í kekkjalausa þur­refna­blöndu.

Blaut efni:

  • 2 egg
  • ½ b repju- eða sól­blóma­ol­ía (1 dl)
  • 1 tsk vanillu­drop­ar
  • 1 b kók (2½ dl)

Hitið ofn í 200 gráður. Hrærið sam­an, þeytið þar til vökvinn hætt­ir að skilja sig og freyðir aðeins. Hellið sam­an við þur­refn­in og blandið vel en var­lega. Ekki hræra lengi en náið úr öll­um kekkj­um.

Í botn­inn:

  • Kó­kos­flög­ur eða kó­kos­mjöl
  • Pek­an­hnet­ur, saxaðar
  • Hvítt súkkulaði, drop­ar eða saxað

Hér er það smekks­atriði hversu mikið skal nota af hrá­efn­un­um. Notið fal­legt form eða ofn­fast mót. Smyrjið það með smjöri. Stráið kó­kos í botn­inn, ásamt pek­an­hnet­um og súkkulaði. Hellið deig­inu yfir.

Rjóma­ost­skrem:

  • 110 g smjör, brætt
  • 220 g rjóma­ost­ur
  • 250-350 g flór­syk­ur, sætu­magn eft­ir smekk

Bræðið sam­an smjör og rjóma­ost. Setjið syk­ur­inn sam­an við og blandið vel. Hrærið allt sam­an í kekkjalausa blöndu. Hellið í mjórri bunu yfir súkkulaðideigið í form­inu, frá hægri til vinstri, yfir all­an flöt­inn. Takið gaffal, stingið hon­um létt í deigið og hreyfið hann til og frá, með létt­um hreyf­ing­um. Allt til að rjóma­ost­skremið myndi fal­legt marm­ara­mynst­ur í súkkulaðibotn­inn.

Stingið í heit­an ofn­inn og bakið í um 25-35 mín­út­ur. Alls ekki baka kök­una of lengi, hún á að vera frek­ar blaut. Fylg­ist vel með henni og stingið í hana. Berið fram volga eða kalda og með þeytt­um rjóma.

mbl.is/​Gunn­ar Sverris­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert