Þetta er ástæðan fyrir prumpulykt

Hvernig er prumpulyktin þín?
Hvernig er prumpulyktin þín? mbl.is/iStock

Hef­urðu tekið eft­ir því að prump á það til að lykta mis­vel. Það get­ur farið allt eft­ir því hvað þú borðaðir. Rann­sókn var gerð á prumpi í Mon­ash Uni­versity í Mel­bour­ne í Ástr­al­íu og í ljós kom að prump lykt­ar ekki eins illa ef þú skerð niður mat­vör­ur sem inni­halda mikið pró­tín.

Það þýðir að þegar prumpið þitt lykt­ar eins og úld­in egg, þá kem­ur það frá brenni­steins­efn­um sem mynd­ast þegar bakt­erí­urn­ar í þörm­un­um fá pró­tín – ým­ist úr kjöti, eggj­um eða mjólk­ur­vör­um.

En það er ein­falt að stýra ilm­in­um frá prump­inu án þess að sleppa pró­tín­un­um. Í staðinn skaltu bæta pró­tín­inn­tök­una með kol­vetn­um sem inni­halda sterkju, eins og kart­öfl­um, pasta og ban­ön­um, eins heil­hveiti og asp­as.

En af hverju lykt­ar manns eigið prump ekki eins illa og annarra? 

Ef þú tek­ur ekki fyr­ir nefið eða snýrð þér í hina átt­ina þegar þú finn­ur lykt­ina af eig­in prumpi þá gæti ástæðan verið ein­föld. Þú ert í raun og veru van­ur þinni eig­in lykt og bregst ekki eins við og að finna lykt­ina af öðrum. Þú ein­fald­lega kýst eig­in prumpu­lykt vegna þess að þú ert viðbú­inn henni, heil­inn þekk­ir hana vel og þú veist hvaðan hún kem­ur – frá þér.

Sum­ir telja að heil­inn bregðist við eins og hætta sé á ferð þegar aðrir leysa vind. Þessi viðbrögð eiga víst ræt­ur að rekja allt til þess tíma er mann­fólkið gekk ekki í nein­um föt­um sem slík­um og þegar ein­hver prumpaði varð viðkom­andi eins og smit­beri.

mbl.is/​iStock
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert