Ein besta smoothie-skál sem þú munt smakka er akkúrat þessi hér – með hindberjum og toppuð með bönunum. Hún er svo stórkostleg að hún hentar bæði sem kraftmikill morgunmatur og sem dýrindis desert.
Morgunmaturinn sem er betri en desert
Má bjóða þér morgunmat sem desert?
Smoothie:
- 2 bananar
- 150 g hindber
- 2,5 dl mjólk
- ½ vanillustöng
Annað:
- 50 g hindber
- 1 kíví
- 2 msk. möndlur, hakkaðar
- 2 msk. dökkt súkkulaði, smátt saxað
Aðferð:
- Settu allt í blandara og blandaðu vel saman. Helltu í tvær skálar og skreyttu með hindberjum, kíví, hökkuðum möndlum og smátt söxuðu súkkulaði.