Mexíkóveisla sem mun breyta lífi þínu

Þessi réttur er upp á tíu og meira til!
Þessi réttur er upp á tíu og meira til! mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Þess­ar ljúf­fengu enchila­das eru fljót­leg­ar í und­ir­bún­ingi og al­gjört lostæti. Upp­skrift­in er úr smiðju Hild­ar Rut­ar Ingimars­dótt­ur sem er mat­gæðing­ur með meiru og höf­und­ur bók­ar­inn­ar Avoca­do sem kom út hér um árið.  

Hild­ur seg­ir: „Það er mjög sniðugt að nota af­gangsnauta­hakk, eins og ég gerði, en ann­ars tek­ur enga stund að út­búa það. Svo er stór plús að rétt­ur­inn er barn­vænn, svona rétt­ir slá alltaf í gegn hjá sjö ára syni mín­um. Ég elska að gera mat sem öll­um finnst góður á heim­il­inu.“ Þessi dá­semd­ar­rétt­ur er himna­sæla fyr­ir bragðlauk­ana þegar hann er bor­inn fram með ostasósu, avóka­dóstöppu og sýrðum rjóma ásamt nachos­flög­um.

Mexíkóveisla sem mun breyta lífi þínu

Vista Prenta

Dá­sam­lega góðar enchila­das (fyr­ir 2-3)

  • 6 tortill­ur
  • 400-500 g nauta­hakk (eða veg­an­hakk)
  • 1 lít­il krukka salsasósa
  • cayenn­ep­ip­ar
  • kummín
  • paprikukrydd
  • salt og pip­ar
  • rjóma­ost­ur
  • 1/​2 blaðlauk­ur, smátt skor­inn
  • 2-3 msk. sýrður rjómi
  • chili exp­losi­on
  • 2-3 tóm­at­ar, smátt skorn­ir
  • rif­inn chedd­arost­ur
  • rif­inn gratínost­ur eða ann­ar rif­inn ost­ur (má sleppa)
  • fersk­ur kórí­and­er

Avóka­dóstappa:

  • 2 avóka­dó (eða meira)
  • 1 msk. límónusafi
  • salt og pip­ar

Ostasósa:

  • 2 msk. smjör
  • 1 msk. hveiti
  • 2 dl nýmjólk
  • 5 dl rif­inn chedd­arost­ur
  • cayenn­ep­ip­ar
  • smá salt

Aðferð:

  1. Steikið hakkið á pönnu, kryddið með cayenn­ep­ip­ar, kummíni, paprikukryddi, salti og pip­ar og hrærið salsasós­unni sam­an við. Ég mæli með að steikja meira hakk og nota það dag­inn eft­ir í ann­an rétt eða nota hakkið, sem var eldað dag­inn áður, í þenn­an rétt.
  2. Smyrjið tortill­urn­ar með rjóma­osti. Dreifið blaðlaukn­um yfir og því næst nauta­hakki eft­ir smekk (mér finnst ekki gott að hafa of mikið).
  3. Rúllið upp tortill­un­um og raðið í eld­fast smurt form. Smyrjið yfir þær sýrðum rjóma og kryddið með chili exp­losi­on. Dreifið tómöt­un­um yfir og stráið rifn­um osti yfir allt sam­an. Bakið í 15-17 mín­út­ur við 190°C eða þar til ost­ur­inn er orðinn gyllt­ur.
  4. Toppið enchila­das með ostasósu, avóka­dóstöppu og fersk­um kórí­and­er.

Avóka­dóstappa:

  1. Stappið avóka­dó og keistið safa úr límónu yfir. Saltið og piprið.

Ostasósa:

  1. Bræðið smjörið í pott við væg­an hita. Hrærið hveit­inu sam­an við og blandið því næst mjólk­inni út í. Hrærið þar til bland­an hef­ur þykknað og bætið chedd­arost­in­um við. Hrærið þar til ost­ur­inn er bráðinn og kryddið eft­ir smekk.
Það jafnast fátt við tortillakökur með avocadostöppu og ostasósu.
Það jafn­ast fátt við tortilla­kök­ur með avoca­dostöppu og ostasósu. mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
Hildur Rut stendur á bak við þennan dásamlega rétt sem …
Hild­ur Rut stend­ur á bak við þenn­an dá­sam­lega rétt sem kitl­ar bragðlauk­ana. mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert