Meðlætið sem tryllir mannskapinn

Marineraður og ofnbakaður lax mun engan svíkja.
Marineraður og ofnbakaður lax mun engan svíkja. mbl.is/Winnie Methmann / femina.dk

Það þarf ekki mikið til að töfra fram stór­kost­leg­an fisk­rétt sem slær í gegn. Hér er hann mar­in­eraður í hálf­tíma en má gjarn­an liggja í gljá­an­um í allt að sól­ar­hring fyr­ir mat­reiðslu. Gljáður lax með ofn­bökuðu græn­meti – gjörið svo vel!

Meðlætið sem tryllir mannskapinn

Vista Prenta

Gljáður lax með ofn­bökuðum gul­rót­um (fyr­ir 4)

  • 800 g lax
  • 3 msk. ahorn­s­íróp
  • 1 msk. ólífu­olía
  • 2 tsk dijons­inn­ep
  • ½ sítr­óna
  • hand­fylli ferskt rós­marín

Bakaðar gul­ræt­ur:

  • 1 kg gul­ræt­ur
  • 2 msk. ólífu­olía
  • salt og pip­ar
  • ½ dl möndl­ur
  • 50 g fersk­ur geita­ost­ur
  • 50 g rucola

Aðferð:

  1. Leggið lax­inn í smurt eld­fast mót. Pískið sam­an síróp, olíu, sinn­ep, pressaðan sítr­ónusafa, rif­inn sítr­ónu­börk og smátt saxað rós­marín. Smyrjið blönd­unni yfir lax­inn og setjið í kæli í 30 mín­út­ur (eða allt að 24 tíma).
  2. Bakið lax­inn í ofni í 10 mín­út­ur á sama tíma og gul­ræt­urn­ar. Takið eld­fasta mótið út og penslið lax­inn með mar­in­er­ing­unni sem hef­ur lekið á botn­inn. Bakið áfram í 10 mín­út­ur og berið fram með bökuðum gul­rót­um.

Bakaðar gul­ræt­ur:

  1. Hitið ofn­inn á 175°C. Skrælið gul­ræt­urn­ar, skerið þær í strimla og leggið í eld­fast mót. Veltið þeim upp úr olíu og kryddið með salti og pip­ar. Bakið í ofni í 45 mín­út­ur þar til mjúk­ar. Dreifið möndl­um yfir og látið þær rist­ast í 5 mín­út­ur til viðbót­ar. Myljið geita­ost­inn yfir gul­ræt­urn­ar og dreifið rucola yfir áður en borið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert