Frábært pasta með kryddsmjöri og sveppum

Stórkostlegur pastaréttur með kryddsmjöri og sveppum.
Stórkostlegur pastaréttur með kryddsmjöri og sveppum. mbl.is/Peter Kam/kaere-hjem.dk

Það er bara alls ekki hægt að fá leið á pasta­rétt­um. Sér­stak­lega ekki þegar þeir eru eins frá­bær­ir og þessi rétt­ur hér – með krydds­mjöri og svepp­um.

Frábært pasta með kryddsmjöri og sveppum

Vista Prenta

Frá­bært pasta með krydds­mjöri og svepp­um (fyr­ir 4)

  • 300 g lumaconi pasta
  • 2 hvít­lauksrif
  • 1 dl blandaðar jurtir, t.d. sal­vía, timí­an, basilika
  • 200 g stór­ir svepp­ir
  • Ólífu­olía
  • Par­mes­an

Krydds­mjör:

  • 1 hvít­lauksrif
  • ½ lime
  • 1 msk. basilika
  • 75 g smjör við stofu­hita
  • chili­f­lög­ur á hnífsoddi
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað sam­kvæmt leiðbein­ing­um.
  2. Saxið hvít­lauk og jurtir smátt.
  3. Skerið svepp­ina í skíf­ur og steikið upp úr ólífu­olíu þar til þeir taka lit.
  4. Bætið hvít­lauk út á pönn­una ásamt jurt­um og steikið áfram í nokkr­ar mín­út­ur.
  5. Blandið past­anu út á pönn­una og veltið sam­an. Smakkið til með salti og pip­ar.
  6. Rífið par­mes­an yfir og berið fram með krydds­mjöri.

Krydds­mjör:

  1. Pressið hvít­lauk­inn, rífið utan af li­me­berk­in­um og saxið basilik­um fínt. Blandið sam­an við mjúkt smjörið og chili­f­lög­ur.
  2. Smakkið til með salti og pip­ar.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert