Pastarétturinn sem Ítalir elska

Þennan geggjaða pastarétt verða allir að prófa.
Þennan geggjaða pastarétt verða allir að prófa. mbl.is/Colombus Leth

Þessi pasta­rétt­ur er þekkt­ur und­ir nafn­inu „boscai­ola“ í ít­ölsk­um kokka­bók­um. Hann inni­held­ur sveppi, hvít­vín og hvít­lauk og finnst í ótal út­færsl­um.

Pasta­rétt­ur­inn sem Ítal­ir elska

Vista Prenta

Al­veg klikkaður pasta­rétt­ur (fyr­ir 6)

  • 400 g pasta
  • 3 stór hvít­lauksrif
  • ½ rautt chili
  • 4 msk. stein­selja, smátt söxuð
  • 4 msk. ólífu­olía
  • 200 g svepp­ir
  • 300 g salsiccia eða önn­ur sterk pylsa
  • 1 dl hvít­vín
  • 1 dl rjómi
  • sjáv­ar­salt og pip­ar
  • 50 g par­mes­an

Skraut:

  • ½ rautt chili
  • 4 msk. fersk basilika, gróf söxuð

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað sam­kvæmt leiðbein­ing­um þar til al dente og hellið vatn­inu frá.
  2. Skerið hvít­lauk­inn í þunn­ar skíf­ur og saxið chili og stein­selju smátt.
  3. Hitið olíu í stór­um potti og ristið hvít­lauk­inn, chili og stein­selju. Skerið svepp­ina í 4 hluta og ristið á pönn­unni. Skerið pyls­una í þykk­ar sneiðar og bætið út í.
  4. Hellið hvít­víni út í pott­inn og látið sjóða. Bætið þá rjóm­an­um út í og látið malla í smá stund. Bætið þá past­anu sam­an við og veltið upp úr blönd­unni. Takið af hell­unni og kryddið með par­mes­an, salti og pip­ar.
  5. Berið fram og dreifið basiliku­blöðum yfir ásamt smátt söxuðu chili.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert