Þegar þig þyrstir í eitthvert ómótstæðilega gott brauð, þá bjóðum við þetta hérna. Ólífubrauð með beikoni og aioli.
Ólífubrauð með beikoni og geggjað aioli
Brauð:
- 100 g svartar ólífur án steins
- 2 sellerístangir
- 300 g hveiti
- 125 g beikon í litlum bitum
- 150 g rifinn cheddar ostur
- 3 egg
- 2 tsk. lyftiduft
- 4 msk. mjólk
- ¾ tsk. salt
- Pipar
Aioli:
- 2 eggjarauður
- 1 msk. sítrónusafi
- ½ tsk. salt
- pipar
- 3 stór hvítlauksrif
- 1 dl ólífuolía
- 1 dl sólblómaolía
- 2 msk. sítrónusafi
Aðferð:
Brauð:
- Saxið ólífurnar gróflega. Skerið selleríið smátt og blandið saman við ólífurnar ásamt restinni af hráefnunum.
- Setjið deigið í smurt brauðform og bakið við 180° í 40 mínútur á næstneðstu hæðinni í ofninum.
Aioli:
- Passið að öll hráefnin séu við stofuhita. Setjið eggjarauðurnar í skál og pískið 1 msk. sítrónusafa, salti og pipar saman í 1 mínútu.
- Dreypið smáveigis af olíunum út í. Þegar þú hefur komið um 2 msk. af olíu saman við dressinguna, þá máttu setja 1 msk. í einu út í blönduna.
- Merjið hvítlaukinn og setjið út í ásamt restinni af sítrónusafanum.
- Berið fram með nýbökuðu brauðinu.