Splunkunýtt og sjúklega lekkert frá Rosendahl

Nýtt matarstell frá Rosendahl var að líta dagsins ljós.
Nýtt matarstell frá Rosendahl var að líta dagsins ljós. mbl.is/Rosendahl

Klass­íska mat­ar­stellið frá Rosendahl sem við þekkj­um svo vel hef­ur nú verið upp­fært úr hvíta postu­lín­inu yfir í allt aðra tóna. Við erum að sjá fal­lega leirtaus­diska, skál­ar og aðra fylgi­hluti sem smellpassa við það sem þú átt fyr­ir í skáp­un­um.

Það stór­kost­lega er að disk­arn­ir sjálf­ir virka einnig sem lok á skál­arn­ar til að geyma af­ganga í stað plast­filmu eða álp­app­írs.

Stellið kem­ur í ljós­um blágrá­um lit og beige sem minn­ir helst á vanillukrem með svört­um vanillu­korn­um – eða lystauk­andi mat­ar­stell! Nýja lín­an kem­ur í versl­an­ir í sept­em­ber og mun án efa lenda hér á landi hjá þeim fjöl­mörgu fyr­ir­tækj­um sem selja Rosendahl-vör­urn­ar.

Diskarnir koma að góðum notum sem lok á skálarnar.
Disk­arn­ir koma að góðum not­um sem lok á skál­arn­ar. mbl.is/​Rosendahl
Fallegir litir í nýju línunni.
Fal­leg­ir lit­ir í nýju lín­unni. mbl.is/​Rosendahl
mbl.is/​Rosendahl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert