Svona frískar þú upp á þreytta skó

Við erum með ráðin til að þrífa skítuga skó.
Við erum með ráðin til að þrífa skítuga skó. mbl.is/Colourbox

Við þurf­um ekki að skott­ast í næstu versl­un og ná okk­ur í nýtt skóp­ar þó að þeir gömlu hafi misst glans­inn á yf­ir­borðinu – ef þeir eru ann­ars í góðu standi. Hér eru nokk­ur trix hvernig má fríska upp á gamla eða bara skít­uga skó.

  • Þú get­ur notað hvítt strokleður á dökka bletti á rúskinns­skóm. Byrjaðu bara var­lega að þurrka af þeim og strokleðrið mun vinna krafta­verk.
  • Naglalakks­eyðir er full­kom­inn á striga­skó og fjar­læg­ir strik og bletti af hvíta gúmmí­sól­an­um á auga­bragði.
  • Til að vernda skó fyr­ir bleytu má vel nudda þá upp úr bý­flugna­vaxi – bara passa að setja ekki of mikið og dreifa því jafnt yfir.
  • Önnur aðferð fyr­ir rúskinns­skó er að nota naglaþjöl á fasta bletti. Hér ber þó að fara var­lega í verkið.
  • Fékkstu olíu­bletti á skóna? Sjampó leys­ir upp fitu og því upp­lagt að blanda því sam­an við vatn og pússa skóna upp úr sjampó­vatni.
  • Hár­nær­ing get­ur síðan komið að góðum not­um til að fríska upp á leður­skó. Byrjaðu á inn­an­verðum skón­um til að sjá hvernig leðrið tek­ur við.
  • Tann­kremið stend­ur alltaf fyr­ir sínu þegar kem­ur að þrif­um. Settu smá­veg­is af hvítu tann­kremi á tann­bursta og burstaðu skít­inn burt.
mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert